Hugbúnaðarsmíði & ráðgjöf

Góður kóði.

Vönduð, skjöluð og vingjarnleg hugbúnaðar- og gagnagrunnskerfi — frá grunni eða byggt á eldri kerfum. Greining, hönnun og kóðun unnin með viðskiptavinum, byggt á áratuga reynslu.

Okkar fag.

Greining og hönnun

Góður kóði krefst góðs skilnings á þörfum og ferlum. Góður skilningur á þörfum og ferlum byggir á góðri greiningu og hönnun.

Smíði

Með góða greiningu og hönnun í bakhöndinni verður þróun og smíði góðra kerfa leikur einn. En 30 ára reynsla af hugbúnaðargerð hjálpar til.

Viðhald og skjölun

Góð kerfi eru ekki smíðuð í eitt skipti, þau þróast með notkun og nýjum þörfum. Kerfi sem nýtur vel skjalaðrar ástar og viðhalds endist að eilífu.

Hugbúnaður smíðaður af alúð.

Góður kóði var stofnaður árið 2012 til að sinna smíði góðs hugbúnaðar. Við tökum að okkur viðskiptavini með gott langtímasamband í huga og höfum stofnað til slíkra við fyrirtæki víða um heim.